Bæjarráð: Reykjavíkurborg kemur í veg fyrir samkeppni PDF Prenta Rafpóstur
fimmtudagur, 13 mars 2008

Á fundi sínum í gær samþykkti bæjarráð Fljótsdalshéraðs eftirfarandi ályktun sem Björn Ármann Ólafsson lagði fram sem tillögu:

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs mótmælir því harðlega að Reykjavíkurborg komi í veg
fyrir samkeppni í innanlandsflugi með því að heimila ekki uppbyggingu á aðstöðu
fyrir Iceland Express við Reykjavíkurflugvöll sem og byggingu
samgöngumiðstöðvar við flugvöllinn er þjóni öllu landinu í samgöngum.
Reykjavíkurborg er höfuðborg Íslands og sem slík gegnir hún mikilvægu þjónustuog
öryggishlutverki fyrir alla landsmenn. Með þessari afstöðu teljum við að
höfuðborgin sé að taka afstöðu gegn þeim borgurum sem búa lengst frá Reykjavík
og þurfa að nýta sér flugsamgöngur til að sækja þjónustu til Reykjavíkur. Staða
borgarinnar sem höfuðborg allra landsmanna verður því dregin í efa með þessari
afstöðu borgarstjórnar.
Við skorum á borgarstjórn að endurskoða afstöðu sína og leyfa uppbyggingu við
Reykjavíkurflugvöll sem tryggir samkeppni í innanlandsflugi þannig að þeir sem
þurfa að fljúga innanlands njóti alltaf hagkvæmasta flugfargjalds til og frá
Reykjavík.

reykjavik_airport.jpg
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 29 júlí 2008 )
 
< Fyrri   Næsti >

feed image